Árlegt golfmót EFLU verkfræðistofu var haldið síðastliðinn föstudag á hinum stórglæsilega 18 holu velli á Korpúlfsstöðum hjá Golfklúbbi Reykjavíkur.
Árlegt golfmót EFLU
Árlegt golfmót EFLU verkfræðistofu var haldið síðastliðinn föstudag á hinum stórglæsilega 18 holu velli á Korpúlfsstöðum hjá Golfklúbbi Reykjavíkur.
Alls mættu 92 manns til að taka þátt sem er metþátttaka. Svo átti hinn skemmtilegi viðburður sér stað að einn þátttakenda fór holu í höggi.
Hægt er að lesa nánar um mótið og úrslit á facebook síðu EFLU, ásamt því að sjá myndir.