EFLA er í hópi framúrskarandi fyrirtækja samkvæmt mati Creditinfo. EFLA er í hópi 855 fyrirmyndarfyrirtækja sem þessa viðurkenningu hljóta, sem samsvarar um 2,2% skráðra fyrirtækja á Íslandi, en um 38.500 fyrirtæki eru skráð í hlutafélagaskrá.
EFLA er framúrskarandi fyrirtæki
EFLA er að auki í hópi 84 fyrirtækja hafa ávallt staðist skilyrði Creditinfo frá upphafi þessa mats sem hófst fyrir 8 árum.
Á hverju ári framkvæmir Creditinfo greiningu um fjárhagslegan styrk og stöðugleika fyrirtækja og þau fyrirtæki sem komast á lista framúrskarandi fyrirtækja eiga það sameiginlegt að vera með sterkar stoðir og stöðugleika í sínum rekstri. Þau eru jafnframt líkleg til að efla hag hluthafa og fjárfesta.
Hvað gerir fyrirtæki að framúrskarandi fyrirtæki að mati Creditinfo?
- Er í lánshæfisflokki 1-3
- Rekstrarhagnaður (EBIT) hefur verið jákvæður síðustu þrjú rekstrarár
- Ársniðurstaða hefur verið jákvæð þrjú síðustu rekstrarár
- Eiginfjárhlutfall 20% eða meira síðustu þrjú rekstrarár
- Eignir a.m.k. 90 m.kr á síðasta rekstrarári og 80 m.kr tvö rekstrarár þar á undan
- Framkvæmdastjóri er skráður í hlutafélagaskrá
- Fyrirtækið er virkt samkvæmt skilgreiningu Creditinfo
- Ársreikningi skilað á réttum tíma