Stórsýningin Verk og vit verður haldin í Laugardalshöll 8. – 11. mars næstkomandi og verður EFLA með kynningarbás sem staðsettur er á svæði B6.
EFLA verður á Verk og vit 2018
Sýningin er tileinkuð byggingariðnaði, skipulagsmálum og mannvirkjagerð. Markmið sýningarinnar er að kynna vörur, þjónustu og tækninýjungar á þessu sviði en ekki síður að koma á viðskiptum fagaðila og auka vitund almennings um byggingarmál, skipulagsmál og mannvirkjagerð.
Sýningin er haldin í fjórða sinn en um 23.000 gestir sóttu sýninguna í Laugardalshöll árið 2016 þar sem tæplega 100 fyrirtæki, stofnanir og sveitarfélög kynntu vörur sínar og þjónustu.
Frekari upplýsingar um sýninguna má finna inn á vefnum, www.verkogvit.is