Fagfundur Samorku verður haldinn á Hótel Borgarnesi í dag 28. og 29. maí.
Að þessu sinni verður fjallað um málefni hita-, vatns- og fráveitna, auk þess sem fjallað verður um öryggismál, umhverfismál, jarðhita, laga- og regluumhverfi orku- og veitufyrirtækja o.fl.
Reynir Sævarsson, fagstjóri fráveitur og vatnsveitusviðs EFLU, fjallar um samanburð á hönnun vatns- og fráveitu í Noregi og á Íslandi.