Ísgöngin í Langjökli voru opnuð þann 6.júní síðastliðinn. Ragnheiður Elín Árnadóttir, iðnaðar- og viðskiptaráðherra, opnaði göngin með formlegum hætti með ísöxi þegar hún hjó í sundur ísklump í göngunum.
Ísgöngin formlega opnuð
Ísgöngin í Langjökli verða starfrækt allt árið um kring, eru um 550 metra löng og mest á um 30 metra dýpi. Lofthæðin verður mest fjórir til fimm metrar. Búið er að grafa út nokkra hella í göngunum og leggja fallega LED lýsingu í veggi og gólf. Verkefnið hefur nú þegar fengið mikla athygli frá erlendum fjölmiðlum og áhugasömum Íslandsvinum.
EFLA hefur frá árinu 2010 unnið að undirbúningi verkefnisins og komið að útfærslu ganga í samvinnu við sýningarhönnuði, hannað lýsingu, loftræstingu, afvötnun og raflagnir ásamt því að halda utan um öll umhverfismál, öryggismál og skipulags- og leyfismál.
Verkefnið í heild
Bókun í ferðir
Frétt mbl.is um opnunina