EFLA leitar að öflugum byggingarverkfræðingi til starfa á brúasviði fyrirtækisins. Brúasvið er hluti af Samgöngusviði EFLU, sérhæft í brúarmannvikjum.
Leitum að öflugum brúarverkfræðing
EFLA leitar að öflugum byggingarverkfræðingi til starfa á brúasviði fyrirtækisins. Brúasvið er hluti af Samgöngusviði EFLU, sérhæft í brúarmannvikjum. Meðal viðfangsefna sviðsins eru hönnun nýrra brúarmannvirkja á Íslandi og í Noregi, ásamt hönnun styrkinga og greiningu á mannvirkjum í rekstri. Umsvif starfseminnar hafa aukist síðustu ár og nýjum starfsmönnum gefst tækifæri á þátttöku í því spennandi þróunarstafi.
Hæfniskröfur:
- M.Sc í byggingarverkfræði
- Góð kunnátta í norsku eða öðru norðurlandamáli
- Góðir skipulags- og samskiptahæfileikar.
- Reynsla af verkefnastjórnun er mikill kostur
- Reynsla af hönnunarvinnu fyrir norsku vegagerðina er kostur
- Frumkvæði og sjálfstæð vinnubrögð, ásamt því að geta unnið vel í hópi
FREKARI UPPLÝSINGAR VEITIR:
Mannauðsstjóri EFLU
Ingunn Ólafsdóttir
Netfang: job@efla.is
Umsókn með upplýsingum um menntun og fyrri störf skal berast inn í gegnum heimasíðu EFLU.
Umsóknarfrestur: 8.janúar 2016