Síðastliðinn föstudag, 24. ágúst, undirritaði EFLA ásamt hlutdeildarfélögum í AVRO Design Group rammasamning við Isavia í tengslum við fyrirhugaðar framkvæmdir við Keflavíkurflugvöll.
Rammasamningur við Isavia
Rammasamningurinn skiptist í 43 liði og eftir að búið var að bera saman verð og hæfi var ljóst að AVRO var metið í fyrsta sæti í 20 liðum. Miklar kröfur eru gerðar til reynslu og hæfi þeirra sem koma að rammasamningnum og er því niðurstaðan afar glæsileg fyrir AVRO. Það er því ljóst að EFLA og félagar í AVRO koma til með að vera leiðandi í þróun og stækkun á Keflavíkurflugvelli í samstarfi við Isavia.
Samningurinn er til 3 ára með möguleikanum á að framlengja hann um 5 ár og gildir hann bæði fyrir flugstöðina og önnur mannvirki á svæðinu.
Öflugir og reynslumiklir samstarfsaðilar
AVRO Design Group er hlutdeildarfélag sem stofnað er utan um hönnun og ráðgjöf vegna verklegra framkvæmda á Keflavíkurflugvelli. Í AVRO eru samankomnir samstarfsaðilar sem búa yfir fjölbreyttri og alþjóðlegri reynslu sem hafa mikla þekkingu af uppbyggingu og framkvæmdum við flugvelli. Í hluthafahópnum auk EFLU eru Nordic Office of Architecture, COWI, Arkþing, Teiknistofan Tröð og Landslag.
- 1 / 2
Frá undirskrift rammasamnings. Mynd: Árni Sæberg.
- 2 / 2
Keflavíkurflugvöllur. Mynd: Isavia.