Samfélagssjóður EFLU veitti nú í júní sína sjöttu úthlutun. Sjóðurinn var stofnaður í tilefni af 40 ára afmæli fyrirtækisins en markmið sjóðsins er að láta gott af sér leiða í samfélaginu og veita styrki til verðugra verkefna.
Samfélagssjóður EFLU styrkir níu verkefni
Samtals bárust 83 umsóknir að þessu sinni í alla flokka og hlutu 9 verkefni styrk. Umsóknir voru metnar út frá markmiðum sjóðsins, markmiðum EFLU og áherslum nefndarinnar.
Verkefnin eru:
- UNICEF á Íslandi - vegna söfnunar til að tryggja sýrlenskum flóttabörnum í Jórdaníu menntun.
- Dropinn, styrktarfélag barna með sykursýki - vegna sumarbúða fyrir börn með sykursýki að Löngumýri í Skagafirði.
- Sjálfsbjörg á höfuðborgarsvæðinu - vegna útivistarsvæðisins Krika við Elliðavatn.
- Styrktarfélag barna með einhverfu - vegna námskeiða fyrir börn með einhverfu og foreldra þeirra.
- Team Spark - vegna keppninnar Formula Student sem fram fer í Englandi í júlí.
- Samfés, samtök félagsmiðstöðva og ungmennahúsa - vegna hönnunarkeppninnar Stíls.
- Valdís Eyja Pálsdóttir og Eyrún Kristína Gunnarsdóttir - vegna námskeiðanna Klókir Krakkar og Klókir litlir Krakkar.
- Akureyrarstofa - vegna þátttöku Ævars vísindamanns í Vísindasetri Akureyrarvöku.
- Seyðisfjarðarkaupstaður - vegna endurútgáfu og uppfærslu bókarinnar Húsasaga Seyðisfjarðar.
Tekið er á móti umsóknum í samfélagssjóðinn allt árið um kring en úthlutað er úr sjóðnum tvisvar á ári, að vori og hausti. EFLA verkfræðistofa óskar nýjum styrkhöfum innilega til hamingju og alls hins besta í framtíðinni.