EFLA er eitt af 103 íslenskum fyrirtækjum sem hafa skrifað undir sameiginlega yfirlýsingu í loftslagsmálum um að draga verulega úr losun gróðurhúsalofttegunda.
Samstarfssamningur um kolefnisjöfnun og umhverfismarkmið
Með þessari yfirlýsingu undirstrikar EFLA að áfram verði haldið á þeirri braut sem fyrirtækið hefur markað, að vera í forystu bæði í eigin starfsemi og ráðgjöf í umhverfismálum og umhverfistengdum verkefnum.
Í tenglum við ofangreind markmið hefur EFLA gert samstarfssamning við Kolvið um kolefnisjöfnun vegna bílanotkunar hjá fyrirtækinu. Samkomulagið felur í sér að kolefnisjafna alla beina losun gróðurhúsalofttegunda frá bílum EFLU og óbeina losun vegna notkun bílaleigubíla á vegum EFLU. Kolefnisbindingin er framkvæmd með gróðursetningu á tæpum 700 trjám á svæðum sem Kolviður hefur umsjón með.
Kolviður er stofnaður af Skógræktarfélagi Íslands og Landvernd og miðar að því að binda kolefni í skógarvistkerfum í þeim tilgangi að draga úr styrk koldíoxíðs (CO2) í andrúmsloftinu, að binda jarðveg og draga úr jarðvegseyðingu.
Loftgæða- og úrgangsmarkmið EFLU
EFLA hefur einnig sett sér skýr markmið varðandi losun gróðurhúsategunda og minnkun úrgangs og skilgreint aðgerðir til að svo megi vera. Markmiðin eru eftirfarandi:
- Losun gróðurhúsalofttegunda hjá EFLU árið 2020 verði 25% minni en losun ársins 2015 og árið 2030 verði losunin 40% minni en árið 2015. Til þess að svo megi vera ætlar EFLA að leggja áherslu á að nýta vistvænustu bíla sem eru í boði hverju sinni og draga úr flugferðum eins og kostur er.
- Endurvinnsluhlutfall úrgangs verði 95% árið 2020 og 98% árið 2030. Magn óflokkaðs úrgangs á hvern starfsmann minnki um 93% til ársins 2030. Árið 2015 var endurvinnsluhlutfallið 70%. Þannig verður stöðugt lögð áhersla á að auka flokkun og minnka magn úrgangs, sérstaklega umbúða.