EFLA fékk það skemmtilega verkefni að lagfæra eitt helsta kennileiti Esju, sjálfan Stein. Umræddur Steinn birtist gjarnan á samfélagsmiðlum fjallagarpa Esjunnar og er vinsæll myndafélagi á sjálfum (selfies).
Steinn, sem er staddur efst uppi á Langahrygg, var farinn að halla mikið undanfarin þrjú ár og fólk farið að hafa áhyggjur af honum. Það var því EFLU bæði ljúft og skylt að veita Skógræktarfélagi Reykjavíkur verkfræðiaðstoð við að tryggja undirstöður hans. Undir Stein voru settar keðjur til að strappa hann af, hlaðið undir hann púkki, hið þekkta skilti rétt af og staurinn með gestabókinni lagfærður. Með aðgerðunum hefur verið tryggt að Steinn situr áfram fastur á sínum stað í Esjuhlíðum göngugörpum til gagns og gamans.
Stórum björgum rúllað niður
Skógræktarfélag Reykjavíkur, sem er staðarhaldari gönguleiða við Esju, fór fyrir verkefninu en það er hluti af stærri aðgerðum við fjallið. Ásamt lagfæringu Steins var fjórum stórum björgum, nærri toppi Þverfellshornsins, rúllað niður en talin var hætta á að þau gætu farið af stað hvenær sem er með tilheyrandi hættu fyrir útivistarfólk sem gengur upp Esjuna á hverju ári.
Endurbætur við gönguleiðir
Markvissar endurbætur hafa orðið á stígum við Esju síðustu misseri og hefur teymi frá EFLU komið að þeim verkefnum.
Myndir frá verkefninu
- 1 / 8
Stór björg voru losuð frá klettunum og þeim rúllað niður. Jón Haukur og Stefán Geir frá EFLU sá um verkið. NæstaFyrriSíður:12345678
- 2 / 8
Jón Haukur og Stefán Geir sáu um að losa björgin.
- 3 / 8
Stefán Geir losar bjargið frá syllunni.
- 4 / 8
Niður fór bjargið.
- 5 / 8
Myndatökumaður frá Stöð 2 fylgdist með aðgerðunum og festi á filmu.
- 6 / 8
Kimmo frá Skógræktarfélaginu var hluti af teyminu sem vann að lagfæringu Steins í sumar
- 7 / 8
Búið að rétta af skilti og staur við Stein, sem er tilbúinn fyrir áframhaldandi myndatökur.
- 8 / 8
Festingar settar við Stein og hann strappaður niður. NæstaFyrriSíður:12345678