Þann 3. maí síðastliðinn tók EFLA á móti hóp ungra stúlkna úr 9. bekk í Rimaskóla í tengslum við verkefnið „Stelpur og tækni“. Verkefnið er á vegum Háskólans í Reykjavík, Ský og Samtaka iðnaðarins. Stelpum er boðið í háskólann og tæknifyrirtæki með það að markmiði að vekja áhuga þeirra á þeim ýmsu möguleikum sem eru fyrir hendi í tækninámi og störfum.
Stelpur í tækni
EFLA bauð 17 stelpur velkomnar til sín á Höfðabakkann þar sem stelpurnar fengu að kynnast konum á ólíkum sviðum innan fyrirtækisins og fræðast um hvað þær eru að fást við dags daglega. Stelpunum var einnig skipt upp í hópa og fengu þær að glíma við nokkur verkefni, m.a. reiknuðu þær sitt eigið kolefnisspor, byggðu mannvirki úr spaghettí og sykurpúðum og tengdu rafmagnskló við ljósaperu.
Við þökkum stelpunum úr 9. bekk í Rimaskóla fyrir skemmtilega stund og Háskólanum í Reykjavík fyrir flott verkefni.
- 1 / 5
Stelpurnar að tengja rafmagnskló.
- 2 / 5
Mannvirki byggð.
- 3 / 5
Einbeitingin leyndi sér ekki.
- 4 / 5
Haldin var stutt kynning á EFLU fyrir hópinn.
- 5 / 5
Spaghettí- og sykurpúðamannvirki í smíðum.