Tæknidagur fjölskyldunnar er árlegur viðburður sem er tileinkaður tækni, vísindum, sköpun og þróun á Austurlandi. Tæknidagurinn er á vegum Verkmenntaskóla Austurlands í Neskaupstað og fór fram 7. október síðastliðinn.
Sýndarveruleiki EFLU vekur eftirtekt á Tæknideginum
EFLA tók þátt í Tæknideginum og var með kynningarbás þar sem gestum var boðið að upplifa sýndarveruleikamódel af nýju uppsjávarfrystihúsi ESKJU, en EFLA sá m.a. um byggingarhönnun hússins. Með þrívíddargleraugum var hægt að ganga um eða „hoppa“ á milli fyrirfram valinna áfangastaða í frystihúsinu og skoða húsið í þrívídd. Sýndarveruleikinn vakti heilmikla athygli og var stöðugur gestagangur við kynningarbásinn. Yngstu kynslóðinni fannst sérstaklega spennandi og hálf óraunverulegt að skoða hús á Eskifirði á meðan þau voru staðsett í Neskaupstað.
EFLA hefur ávallt lagt mikla áherslu á nýsköpun og tækniþróun. Það var ánægjulegt að taka þátt í viðburði sem þessum og kynna til leiks nýja þjónustu á sviði sýndarveruleika.
Tæknidagurinn var haldinn í fimmta skiptið og er viðburðurinn í stöðugum vexti, en á milli 1200 til 1300 gestir heimsóttu sýninguna í ár.